Skilmálar

1. Almennt

Með því að versla í gegnum netverslun Sokkapar ehf. samþykkir þú eftirfarandi skilmála og skuldbindur þig til að fara eftir þeim. Skilmálarnir gilda um öll viðskipti sem fara fram á vefnum www.minime.is.

Ef spurningar vakna, vinsamlegast hafðu samband á sokkapar@sokkapar.is.


2. Verð og upplýsingar

Öll verð í netversluninni eru tilgreind með virðisaukaskatti (VSK). Verð og upplýsingar um vörur eru birt með fyrirvara um prent- og innsláttarvillur. Sokkapar ehf. áskilur sér rétt til að breyta verði og vörulýsingum án fyrirvara.

Ef vara er rangt verðmerkt eða ekki fáanleg áskiljum við okkur rétt til að afturkalla pöntun. Þá verður kaupanda boðin endurgreiðsla eða önnur lausn í samráði við hann.


3. Greiðslumátar

Greiða má með eftirfarandi hætti:

  • Greiðslukort í gegnum örugga greiðslugátt.
  • Millifærsla á reikning Sokkapar ehf. innan 24 klst. frá pöntun. Kvittun skal senda á sokkapar@sokkapar.is.
    • Reikningur: 0133-26-019860
    • Kennitala: 540325-2430

Greiðsla verður að berast áður en pöntun er afgreidd. Ef greiðsla berst ekki innan tímamarka fer varan aftur í sölu.


4. Afhending og sending

Pantanir eru sendar með Dropp eða Póstinum. Skilmálar Dropp og/eða Póstsins um afhendingu og ábyrgð gilda um allar sendingar frá okkur. Þegar pöntun hefur verið afhent flutningsaðila ber hann ábyrgð á sendingunni.

  • Pöntunum sem berast fyrir hádegi er venjulega pakkað og sent samdægurs.
  • Einnig er hægt að sækja pantanir samkvæmt samkomulagi.

5. Skil og skilaréttur

Viðskiptavinur hefur rétt til að hætta við kaup og skila vöru innan 14 daga frá móttöku. Skilyrði fyrir skilum eru:

  • Varan má ekki hafa verið notuð eða skemmd.
  • Vörunni skal skilað í upprunalegum og óopnuðum umbúðum.
  • Kvittun eða sönnun fyrir kaupum þarf að fylgja með.
  • Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.

Við endurgreiðum söluverð vörunnar þegar hún hefur borist okkur í óbreyttu ástandi. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.


6. Trúnaður og persónuvernd

Við berum virðingu fyrir persónuvernd viðskiptavina okkar. Upplýsingar sem safnað er við kaup eru eingöngu notaðar til að vinna úr pöntun og veita þjónustu. Þeim er ekki deilt með þriðja aðila nema lagaskylda krefjist þess.


7. Gildistími og breytingar

Skilmálar þessir taka gildi við kaup og gilda þar til nýir taka við. Sokkapar ehf. áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála hvenær sem er. Breytingar verða birtar á vefnum og gilda frá birtingardegi.


8. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa og viðskipti við Sokkapar ehf. gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur skal hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur, nema lög mæli fyrir um annað.

Shopping Cart
Scroll to Top